Fótsporin mín

Þínar eigin hugsanir halda þér föstum og höggva þig niður aftan frá.

sunnudagur, janúar 30, 2005

Halló
Hér er ekki mikið að frétta fyrir utan brúðskaupsundirbúning. Hann gengur bara vel. Það er búið að fá "hljómsveit" til að spila fyrir dansi og við erum byrjuð að æfa okkur að dansa. Hittum fólkið sem sér um þáttinn og voru þau svo þægileg að ég gat borðað vöfflu á meðan við vorum að tala við þau. Vandamál eru til þess að sigrast á þeim. Er búin að þyngjast um hálf kíló á þessum tveimur vikum sem ég hef verið að lyfta.

Okkur finnst skrítið að það þurfi að hækka raforkuverð þegar það er bullandi gróði á þessum fyrirtækjum Rarik og Orkuveitunni. Orkuveitan var með 5 milljarða í hagnað ef ég man rétt. Þeir voru að byggja sér hús fyrir einhverja milljarða og eiga samt skítnóg eftir. Þá get ég ekki séð mikla þörf á því að hækka verðið á þjónustunni. Mér finnst gott að búa í sveit en stjórnvöld eru ekki að gera það manni auðveld. Það er eiginlega sama hvort það eru samgöngur, símaband eða rafmagnskostnaður allt er það verra en í höfuðborginni en þangað langar mig ekki að fara nema þá í mesta lagi í verslunarleiðangur eða til að vera í minna en 7 tíma í einu því þá er ég búinn að fá nóg. Í morgun komu hér tvær stelpur og kvörtuð þær yfir vondum vegi hingað. Það er kannski þess vegna sem það kemur enginn að heimsækja okkur, eða þá að við erum ekki alltaf í fötum þegar fólk hefur komið í heimsókn. Þær komu þegar Olla var nýkomin úr sturtu.
Held að þetta komið gott í bili og segi ég því bless og hafið þið það sem best.