Fótsporin mín

Þínar eigin hugsanir halda þér föstum og höggva þig niður aftan frá.

laugardagur, júlí 10, 2004

Hrósa sjálfum sér.
Sveinn

Ég var að hlaða grjóti síðasta sumar uppá Hvammi og þegar við vorum þar þá báðum við um að garðurinn væri sleginn svo við myndum ekki trampa hann allan niður. Garðurinn var sleginn en frekar illa og grasið allt skilið eftir og skammaðist ég mikið yfir þessu og endaða þetta síðan með því að ég tók grassið og sló garðinn síðan aftur. Svo var talað um að ég gerði þetta aftur í sumar en ég hafði ekki tíma til þess. Bekkurinn hans Eiríks fær síðan það verkefni að slá garðinn í ár og ég hafður með sem ráðgjafi hvernig best er að slá (snyrta) hleðsluna. Tengdamamma hringir síðan í okkur og spyr hvort við getum komið því það séu bara tveir fullornir með orf og gangi hægt að slá. Við förum uppeftir með orfið okkar (mömmu og pabba) og ég slæ síðan til að verða níu um kvöldið (fórum upp kaffi). Ef við hefðum ekki komið þá hefði þetta ekki klárast um kvöldið og þá hefði næsti dagur farið í þetta líka og það vildi tengdapabbi alls ekki. Tilgangurinn eða kjarni málsins er hvað mér þótti og og þykir gott og gaman að hafa hjálpað þeim. Mér finnst það mjög góð tilfinning að það munni mikið um mann og að eitthvað klárist af því að maður hjálpaði eða var með í því. Ég geri mér grein fyrir því að ég er að lofa (eða mikla) sjálfan mig en ég veit ekki hvort það sé tilgangurinn með þessum skrifum.
Því hefur stundum verið haldið fram að ég sé skrítinn og ég er að mörgu leiti, það fólk sem þekkir mig dæmi bara hver fyrir sig. Í dag fórum við með öll börnin okkar (4 þessa daganna) upp að borgum. Þar vorum tengdasynirnir að dytta að bílunum sínum með aðstoð tengdapabba eða í það minnsta annar okkar. Svo áður en við förum að geri ég eitt sem var mér mikið sáluhjálparatriði og það var taka mótatengi af skemmunni þar sem er ca 10 ára gömul. Mig hefur langað að taka þau af síðan ég kom þarna fyrst og hafa verið mér mikil þyrnir í augum.
Ég fór í mitt fyrsta brúðkaup í gær þ.e.a.s brúðakaup Sigrúnar og Ívars í Ráðagerði. Þetta var notalegt brúðkaup að öllu leiti. Þau giftu sig heima fyrir framan reykkofa sem afi hennar hlóð. Fyrst var grillað og síðan var brúðarkaka sem var súkkulaðikaka og það er að mínu skapi. Ætli þetta sé ekki komið gott í bili og ég segi bless.

p.s það væri nú gaman að fá einhver kommaent frá einhverjum fleiri en konunni.

mánudagur, júlí 05, 2004

Metallica
Sveinn gamli.

Já við fórum á tónleikana í gær ásamt 17998 öðrum. Þegar við komum eitthvað um átta held ég og var komið fullt af fólki kannski 4000 eða eitthvað og þá var dálítið heitt í höllinni. Þá var ekki kveikt á loftræstingunni. Mínus hættir síðan fljótlega að spila og ljósin eru kveikt og við bíðum og fólk streymir inn. Fólkið bíður og bíður og hitinn hækkar og hækkar enda er mikil hiti sem fylgir svona mörgu fólki. Það verður nú að segjast að það var magnað að sjá svona margt fólk á einum stað enda voru þarna um 6% þjóðarinnar á þessu svæði. Metallica lætur síðan bíða eftir sér og mikið kvartað yfir hita og það er klappað þegar loftræstingin er sett í gang en það er slökkt á henni síðan aftur eftir smástund. Metallica byrjar síðan að spila og það mjög svalt að sjá þá spila. Við vorum nálægt girðingunni sem afmarkaði svæði a en fórum þaðan til að fá okkur eitthvað að drekka við þá fannst Ollu að það væri að líða fyrir hana. Við fáum okkur klakka og eitthvað að drekka. Mér finnst þá að það sé að líða yfir mig og labba út (hafði það af þó að ég væri farinn að sjá óskýrt). Þá sjáum við já og finnum hvað er heitt í höllinni því að kemur hreinlega gufustrókur út um dyrnar þegar sem við fórum út. Við förum síðan inn eftir smástund og þá labbar maður bara á veg úr hita, svita og reykingarlykt. Erum síðan bara aftast og horfum yfir mannhafið og sjáum sviðið betur en bara minna því við erum kominn svo langt í burtu. Við síðan gefumst síðan upp á hitanum því mér finnst eiginlega alltaf vera að líða yfir mig. Þeir spiluðu síðan eitt eða tvö lög eftir að við löbbum af stað. Við vorum sammála um það að það hefði ekki verið mikil stemming í höllinni, hvort sem það var hita um að kenna eða einhverju öðru. Síðan er rétt að minnast á það að Íslendingar eru oft bara bjánar í umferðinni. Það var mjög mikil umferð til Reykjavíkur í gær en samt voru nokkrir bjánar sem voru að taka framúr. Rauð corvetta tók framúr okkur sem við síðan keyrðum síðan á eftir inní hringtorgið í mosó það fannst mér hríðarlega sniðugt. Það sem þessi ferð sagði mér er að ég er ekkert unglamb lengur þ.e.a.s keyri ekki lengur hratt og þoli ekki svona hita og gufu. Hef einu sinni farið á svona tónleika en það var í Laugardalshöll en hún var troðfull og það var mjög heitt þar líka en það hafði ekki áhrif og síðan keyrði ég hvalfjörðinn heim og ef ég man rétt ekki á löglegum hraða. Það er best að hætta þessu rausi og fara að gera eitthvað.
Bless bless